Ingólfur Friðriksson

ID: 10793
Fæðingarár : 1901

Ingólfur Friðriksson fæddist í N. Þingeyjarsýslu 22. apríl, 1901.

Maki: 27. maí, 1922 Esther Larson, sænskrar ættar, f. 8. ágúst, 1902 í Manitoba.

Börn: 1. Leonard Jakob f. 23. september, 1924 2. Doreen Þorgerður f. 24. nóvember, 1926 3. Linda Elizabeth f. 4. apríl, 1929 4. Lorna Rosanna f. 4. desember, 1931 5. Dennis Ole Leo f. 27. maí, 1934, d. 8. janúar, 1950.

Ingólfur fór til Vesturheims árið 1905 með foreldrum sínum, Friðriki Guðmundssyni og Þorgerði Jónsdóttur og systkinum. Ingólfur og Esther bjuggu í Vogum í Manitoba.