Ingunn Sigurgeirsdóttir

ID: 5385
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Ingunn Sigurgeirsdóttir Mynd VÍÆ I

Ingunn Sigurgeirsdóttir fæddist 8. maí, 1873 í S. Þingeyjarsýslu.

Maki: 30. júní, 1900 Runólfur Marteinsson f. í S. Múlasýslu 26. nóvember, 1870, d. í Brandon 10. maí, 1959.

Börn 1. Guðrún Aðalbjörg f. 1. júlí, 1901 2. Jón Lárus f. 19. maí, 1903 3. Theodís f. 14. febrúar, 1905 4. Hermann Brandur Thomas f. 7. janúar, 1907.

Ingunn flutti vestur árið 1887 með Halldóri bróður sínum og fjölskyldu hans. Vann um árabil ýmis störf í Winnipeg uns hún giftist. Runólfur flutti vestur til Manitoba árið 1883 með foreldrum sínum, Marteini Jónssyni og Guðrúnu Jónsdóttur. Hann gekk menntaveginn og lærði guðfræði. Vígður prestur 7. maí, 1899 og þjónaði öllum söfnuðum í Nýja Íslandi um árabil. Þjónaði vestur við Kyrrahaf, bæði í Bresku Kolumbíu og Washington en flutti svo til Winnipeg þar sem þau hjón bjuggu síðan.