Ingveldur Benjaminsdóttir

ID: 4272
Fæðingarár : 1881
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1961

Ingveldur (Inga) Benjamínsdóttir 1898 Mynd PaB

Ingveldur Guðný Benjamínsdóttir fæddist í Dalasýslu 24. apríl, 1881. Dáin í Manitoba 25. desember, 1961.

Maki: 24. október, 1906 Jón Sigurður Einarsson f. 15. desember, 1880 í Barðastrandarsýslu, Gillies vestra.

Börn: 1. Jón Benjamin 2. Eyþór Franklín 3. Jón Norman 4. Gladys Steinunn 5. Emil Ágúst.

Ingveldur flutti vestur til Winnipeg með foreldrum sínum, Benjamín Jónssyni og Steinunni Jónsdóttur árið 1883. Þau settust að í Árnesi. Ingveldur stundaði nám í verslunarskóla í Winnipeg og lærði fatasaum. Jón Sigurður flutti vestur til Winnipeg með föður sínum, Einari Gíslasyni árið 1887, en móðir hans, Þórkildur Hafliðadóttir flutti þangað ári síðar. Jón Sigurður rak matvöruverslun í Winnipeg.