ID: 11580
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Jakob Ágúst Jónsson Mynd Almanak 1923

Arnbjörg Jónsdóttir Mynd Almanak 1923
Jakob Ágúst Jónsson fæddist 1. febrúar, 1867 í Vopnafirði í N. Múlasýslu. Venjulega Ágúst Vopni vestra.
Maki: Arnbjörg Jónsdóttir f. í N. Múlasýslu 1865.
Börn: 1. Sigurlaug f. 1892 2. Aðalbjörg f. 18. október, 1890 3. Jóna Arnþrúður 4. Jón Valdimar 5. Árni 6. Ágúst 7. Halldór 8. Anna Sigríður.
Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1892 og settust að í Argylebyggð þar sem þau bjuggu í sex ár. Árið 1898 fluttu þau í Álftárdalinn, námu þar land og bjuggu þar alla tíð.
