
Jakob Einarsson Mynd VÍÆ3

Jórunn Pálsdóttir Mynd VÍÆ3
Jakob Einarsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 16. nóvember, 1865. Dáinn í Muskoka í Ontario 29. desember, 1933.
Maki: Jórunn Pálsdóttir f. 29. desember, 1861, d. 1915.
Börn: 1. Bjarni f. 12. janúar, 1889 2. Guðrún f. 26. febrúar, 1890 3. Páll f. 7. maí, 1891, d. af slysförum 15. júlí, 1903 4. Einar f. 17. nóvember, 1892, d. 8. janúar, 1942 5. Jakobína (Bena) f. 28. september, 1894 6. Aldís Anna f. 26. september, 1898, d. 4. febrúar, 1958 7. Gíslína Elín f. 12. júlí, 1900 8. Fríða Kolfinna f. 20. febrúar, 1907.
Jakob flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1878 með móður sinni, Maríu Magnúsdóttur og systur sinni Arnbjörgu. María varð ráðskona hjá Bjarna Snæbjarnarsyni í Muskokabyggð og þar ólst Jakob upp með Bjarna og tók arf eftir hann árið 1897. Jakob og Jórunn bjuggu alla tíð í Muskokabyggð.
