Jakob Guðjónsson

ID: 11638
Fæðingarár : 1883
Dánarár : 1950

Jakob Guðjónsson Mynd Hnausa Reflections

Jakob Guðjónsson fæddist 2. september, 1883 í N. Múlasýslu. Dáinn á Gimli 25. apríl, 1950.

Maki: 14. maí, 1914 Guðrún Sigríður Albertsdóttir f. í Geysirbyggð 6. ágúst, 1893, d. í Selkirk 27. mars, 1965.

Börn: 1. Albert f. 10. mars, 1915 2. Jónína Stefanía f. 27. nóvember, 1916 3. Árni f. 17. nóvember, 1922 4. Sveinn Ingiberg f. 26. apríl, 1926, d. 24. maí, 1926 5. Sveinbjörg Magnúsína Violet f. 28. janúar, 1928 6. Ástrós Helga Emily f. 24. Október, 1930 7. Kristinn Sigursteinn f. 26. nóvember, 1933.

Jakob fór til Vesturheims árið 1903 með frændum sínum Benedikt og Jóni Halldórssonum. Við komuna til Manitoba fór hann í íslensku byggðina nærri Otto þar sem fregnir bárust að Magnúsi nokkrum Magnússyni, útgerðarmanni í Breiðuvík í Nýja Íslandi, vantaði  menn til fiskveiða. Magnús fór og fékk vinnu hjá Magnúsi og bjó hjá honum á Eyjólfsstöðum í Hnausabyggð. Jakop og Guðrún Sigríður hófu búskap og bjuggu á Selsstöðum til vors 1915. Þá nam jakop land og nefndi bæ sinn Jónsstaði. Þar bjuggu þau síðan.