ID: 9436
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1923

Aftari röð: Jakob, Gísli, Pálína. Fyrir framan standandi Hernit, Þorsteinn og Jónas í kjöltu móður sinnar.
Jakob Jónasson fæddist 18. júní, 1857 á Ytra Fjalli í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn 1. desember, 1923
Maki: Pálína var fædd 1865 í Ljósavatnshreppi í S. Þingeyjarsýslu.
Börn: 1. Gísli f. 1889 2. Hernit 3. Þiðrik Haraldur 4. Jónas 5. Aðalsteinn Sigurður 6. María Sigríður 7. Guðrún Snjólaug.
Þau fluttu vestur um haf árið 1891 til Winnipeg í Manitoba. Þau dvöldu stutt við í Winnipeg og fóru til Argyle. Fluttu á Big Point 1895 og námu þar land.
