Jakob Jónsson

ID: 11044
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : Borgarfjarðarsýsla
Dánarár : 1900

Jakob Jónsson og Ingibjörg Þorsteinsdóttir Mynd WtW

Jakob Jónsson fæddist í Borgarfjarðarsýslu árið 1857. Dáinn í Winnipeg 24. júní, árið 1900.

Maki: 1887 Ingibjörg Helga Þorsteinsdóttir f. 2. desember, 1864 í Borgarfjarðarsýslu, d. 1954.

Börn: 1. Þorsteinn f. 15. febrúar, 1889 í Winnipeg, d. 6. nóvember, 1960 í Seattle 2. Jón f. 1891, dó nokkurra mánaða 3. Jón Jakob f. 18. desember, 1893 4. Skafti Leó f. 30. janúar, 1896, d. 1. september, 1950 í Seattle 5. Kári 6. Jónatan Daníel f. 28. október, 1898, d. 28. júní, 1968. Ingibjörg eignaðist dreng, Ingiberg árið 1910 með Jóni Jónssyni Þistilfjörð en sá dó þriggja mánaða.

Þau fluttu nýgift vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og bjuggu þar í þrjú ár. Árið 1891 námu þau land í Lundarbyggð. Jakob veiktist illa snemma árs 1900 og var fluttur á sjúkrahús í Winnipeg þar sem hann lést. Ingibjörg réði þá til sín vinnumann, Jón Jónsson Þistilfjörð sem sá um búskapinn til ársins 1926. Þau fluttu þá vestur til Seattle í Washingtonríki en sneru aftur til Manitoba árið 1928 og bjuggu í Oak Point.