Jakob Sigurðsson

ID: 8665
Fæðingarár : 1827
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1821

Jakob Sigurðsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 16. febrúar, 1827. Dáinn í N. Dakota 20. janúar, 1921. Eyfjörð (Eyford) vestra.

Maki: Guðlaug Benediktsdóttir f. árið 1834 í Eyjafjarðarsýslu, d. 1908.

Börn: 1. Hanna f. 1862 2. Bogi f. 1863 3. Jakobína f. 1865 4. Júlíus f. 1866 5. Sigurlína f. 1867. Jakob eignaðist son, Kristján f. 1871.

Þau fluttu vestur til Ontario í Kanada árið 1873 og fóru til Parry Sound.  Þaðan lá leiðin árið 1875 til Nýja Íslands þar sem þau bjuggu til ársins 1878. Þá fluttu þau til Winnipeg og bjuggu þar til vors, 1881 en nam þá land suður af Mountain í N. Dakota. Byggðin sem þar myndaðist, Eyfordbyggð var kennd við Jakob Eyfjörð.