Jakobína Jakobsdóttir

ID: 8669
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

 Jakobína Guðrún Jakobsdóttir fæddist á Tjörnesi í S. Þingeyjarsýslu árið 1863.

Maki: 8. október, 1888 Ólafur Sigtryggur Þorgeirsson fæddist á Akureyri í Eyjafjarðarsýslu 16. september, 1864. Dáinn í Manitoba 19. febrúar, 1937. Thorgeirsson vestra.

Börn: 1. Kjartan f. 6. september, 1889, d. 21. ágúst, 1891 2. Ólafía Sigríður f. 5. janúar, 1894, d. 4. ágúst, 1917 3. Ragnheiður f. 8. ágúst, 1897, d. 21. ágúst, 1904 4. Geir f. 28. september, 1901, d. 2. apríl, 1959 5. Ólafur Sigtryggur f. 1. ágúst, 1904 6. Ragnheiður f. 1. ágúst, 1904 7. Karólína 8. Jakobína.

Jakobína flutti vestur til Winnipeg árið 1883, árinu á undan foreldrum sínum, Jakobi Oddssyni og Sigurbjörgu Jónsdóttur og systkinum.  Ólafur fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887, sama ár og foreldrar hans og systkini. Hann bjó alla tíð í Winnipeg og var einn af lykilmönnum íslensks samfélags í borginni, reyndar í vesturíslenska samfélaginu öllu.