Jakobína Jónasdóttir

ID: 13368
Fæðingarár : 1855
Dánarár : 1936

Jakobína Jónasdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 22. apríl, 1855. Dáin 11. janúar, 1934 í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi.

Maki: 8. janúar, 1878 Björn Jónsson f. í N. Múlasýslu 1. janúar, 1841. Dáinn 2. apríl, 1903 í Fljótsbyggð.

Börn: 1. Jónína Solveig f. 15. desember, 1877, d. 1968 2. Þórunn (Tóta) f. 29. janúar, 1880, d. 1894 3. Kristján Jóhannes 4. Emil Karl 5. Sigríður Stefanía f. 13. júlí, 1889 6. Jakob Alexander f. 1892.

Björn og Jakobína voru heitbundin þegar þau fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1877 og þaðan áfram til Nýja Íslands. Þau námu land í Fljótsbyggð og þar gaf séra Jón Bjarnason þau saman í hjónaband í janúar, 1878. Var það fyrsta hjónavígslan í byggðinni. Þau bjuggu þar alla tíð.