
Jakobína Sigfúsdóttir Mynd Well Connected
Jakobína Sigurborg Sigfúsdóttir fæddist 1864 í N. Þingeyjarsýslu. Bena/Bina eða Nina Josephson vestra.
Maki: Guðjón Jónsson f. 30. september, 1853 að Torfastöðum í N. Múlasýslu, d. 26. janúar, 1928 í Bellingham í Washington. John Johnson vestra.
Börn: 1. Ásta Mae f. 1886 2. Einar f. 20. mars, 1889 3. Kristín (Christine) Sigríður f. 25. apríl, 1894.
Jakobína er á Íslandi árið 1880 hjá foreldrum sínum á Melum og fer vestur fyrir 1885 því hún og Guðjón voru gefin saman í Minnesota árið 1885. Sama ár flytja þau til Watertown í S. Dakota þar sem börn þeirra öll fæddust. Þar búa þau árið 1900 en í manntali 1905 er Jakobína skráð til heimilis í Minneapolis með börnin. Trúlega hafa þau skilið fljótlega eftir aldamótin og Guðjón flutt vestur að Kyrrahafi því þar deyr hann.
