ID: 9409
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1923

Guðrún Jakobína Þorláksdóttir Mynd VÍÆ III

Gjentoft J. Isaksen Mynd VÍÆ III
Guðrún Jakobína Þorláksdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 28. júní 1853. Dáin í Blaine í Washington árið 1923. Isaksen vestra.
Maki: Gjentoft J. Isaksen af norskum ættum.
Börn: 1. María 2. Pálína 3. Rósa 4. Óli 5. Jón 6. Gilbert 7. George 8. Robert.
Guðrún flutti til Vesturheims árið 1873 með foreldrum sínum, Þorláki Jónssyni og Lovisu Nielsdóttur frá Stóru Tjörnum í S. Þingeyjarsýslu. Hún bjó hjá þeim í Wisconsin og eftir 1880 í Mountain, N. Dakota. Flutti með manni sínum til Blaine í Washington árið 1903.
