ID: 18595
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1898
Dánarár : 1961

Jóhann Eirickson Mynd VÍÆ III
Jóhann Eirickson fæddist í Svold, N. Dakota 10. apríl, 1898. Dáinn í Calgary í Alberta 29. apríl, 1961.
Maki: Geirþrúður Fedora Valgerður Þórðardóttir f. í Winnipeg 18. desember, 1899, d. í Vancouver í bílslysi 13. janúar, 1953.
Börn: 1. Þorgerður Ingibjörg f. 28. september, 1922 2. Violet f. 1925 3. Ruth f. 1927 4. Jóhann Friðrik f. 31. desember, 1928.
Jóhann var sonur Sveins Eiríkssonar og Guðrúnar Halldórsdóttur, landnema í Hallsonbyggð í N. Dakota árið 1887. Geirþrúður var dóttir Þórðar Helgasonar og Halldóru Geirsdóttur, landnema í Framnesbyggð. Jóhann var í hernum 1915-1919, hann og Geirþrúður bjuggu fyrst í Winnipeg en seinna í Vancouver.
