ID: 11012
Fæðingarár : 1851
Dánarár : 1928
Jóhann G. Jóhannsson fæddist í Skagafirði 31. október, 1851. Dáinn á Point Roberts árið 1928.
Maki: 1877 á Akureyri Sigríður Karólína Jónasdóttir fæddist í Krossavík í S. Þingeyjarsýslu 23. febrúar, 1853, d. árið 1946 í Bellingham.
Börn: 1. Jónas Gottfreð f. á Akureyri árið 1884. 2. Sigurbjörg d. í Pipestone 1910 3. Bergrós, yngst d. 10 ára í Brandon, Manitoba.Tvær dætur, báðar skírðar Kristín Dagbjört dóu í æsku.
Jóhann flutti vestur til Manitoba árið 1886 en Karólína kom þangað ári síðar með soninn Jónas Gottfreð. Þau bjuggu fyrst í Argylebyggð, fluttu þaðan í Pipestone, Manitoba árið 1892. Fluttu þaðan árið 1918 til Point Roberts í Washington
