ID: 7155
Fæðingarár : 1821
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1899
Jóhann Kristjánsson fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1821. Dáinn í Mountain, N. Dakota árið 1899.
Maki: 1846 Rósa Jónsdóttir f. í Skagafjarðarsýslu 10. janúar, 1826, d. 1884.
Börn: 1. Rósa f. 1849 2. Jón f. 1866.
Jóhann og Rósa fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og þaðan til Nýja Íslands. Bjuggu í Fljótsbyggð til ársins 1880 en þá fóru þau suður til N. Dakota og námu land suður af Mountain. Rósa, dóttir þeirra, fór vestur árið 1874 og sameinaðist fjölskyldunni í Mountain.
