
Jóhannes Frímann Melsted Mynd SÍND
Jóhannes Frímann Magnússon fæddist 29. ágúst, 1859 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Wynyard í Saskatchewan 15. ágúst, 1930. Melsted vestra.
Maki: 1886 Jóhanna Jóhannesdóttir f. árið 1865 í S. Þingeyjarsýslu. Þau skildu árið 1910. Ekkjan Hólmfríður Hörgdal flutti til Jóhannesar með fjögur börn. Hún hafði verið gift Edward Crowston, kanadískum manni.
Börn: 1. Valdimar f. 20. febrúar, 1887 2. Elín f. 4. október, 1888 3. Emilía f. 20. apríl, 1890, d. 28. desember, 1923 í Wynyard 4. Leó f. 29. febrúar, 1892 d. sama ár 5. Rose d. í fæðingu 6. Laufey f. 23. maí, 1896 7. Óskar f. 8. febrúar, 1898 8. Bertel f. 15. mars, 1900, d. í maí, 1907 9. Leó Roosevelt f. 28. janúar, 1902 10. Valgerður f. 9. júlí, 1903 11. Elmer f. 18. maí, 1906.
Jóhannes fór vestur til Nýja Íslands með móður sinni og systkinum árið 1876. Þar bjuggu þau á Melstað, landnámsjörð suður af Gimli. Jóhannes og bræður hans kenndu sig við staðinn og voru Melsted. Þau fluttu til N. Dakota árið 1881 og námu land í Garðarbyggð. Jóhannes nam sjálfur land í byggðinni og bjó þar til ársins 1910 en þá flutti hann í Vatnabyggð í Saskatchewan.
