Jóhann Magnússon

ID: 12778
Fæðingarár : 1897
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Jóhann Magnússon Mynd VÍÆ IV

Jóhann Eyjólfur Magnússon fæddist í N. Múlasýslu 23. júní, 1897. Johann M Eyolfsson vestra.

Maki: Ethel, upplýsingar vantar.

Börn: upplýsingar vantar.

Jóhann var sonur Magnúsar Eyjólfssonar og Gróu Einarsdóttur sem vestur fóru með börn sín árið 1903. Fjölskyldan settist að í Winnipeg. Jóhann tók þátt í Fyrri heimstyrjöldinni með kanadíska hernum, kom ósár til baka og flutti vestur að Kyrrahafi. Settist að í Vancouver og vann hjá járnbrautafyrirtæki.