Jóhann Ó Briem

ID: 7083
Fæðingarár : 1845
Dánarár : 1938

Jóhann Briem og Guðrún Pálsdóttir Mynd Almanak 1931

Jóhann Ólafsson Briem fæddist 7. desember, 1845 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Fljótsbyggð 3. júlí, 1838.

Maki: 10. desember, 1881 Guðrún Pálsdóttir f. 14. apríl, 1862, d. 8. apríl, 1937.

Börn: 1. Veighildur Mabel f. 1883 2. Valdheiður Laura f. 1885 3. Páll Marino f. 1886 4. Valgerður Helen f. 1888 5. Sigtryggur Hafsteinn f. 1892 6. Ólafur Eggert f. 1904.

Jóhann flutti vestur um haf árið 1876 og settist að í Fljótsbyggð. Hann kom mikið við sögu á fyrstu árum Nýja Íslands, tók að sér mikilvæg verkefni fyrir nýlendustjórnina og skrifaði mikið í Framfara. Guðrún kom vestur með foreldrum sínum, Páli Péturssyni og Margréti Magnúsdóttur sama ár og Jóhann. Árið 1892 fluttu þau úr Nýja Íslandi og settust að í Argylebyggð. Ekki var dvölin þar löng því þau fluttu þaðan ári síðar aftur í Fljótsbyggð.