Jóhann Ó Dalsted

ID: 18459
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1893

Jóhann Ó Dalsted Mynd VÍÆ III

Jóhann Ólafur Bjarnason fæddist í Svold í N. Dakota 24. nóvember, 1893. Dalsted vestra.

Maki: 30. júní, 1914 Anna Kristrún Guðmundsdóttir f. 21. desember, 1889.

Börn: 1. Guðmundur Leonard f. 5. maí, 1915.

Jóhann var sonur Bjarna Guðmundssonar Dalsted og seinni konu hans, Guðnýjar Þóru Þorsteinsdóttur. Þau bjuggu í Akrabyggð í N. Dakota. Óli Bjarnason, eins og hann var iðulega kallaður í heimabyggðinni, gekk í verslunarskóla og gerðist sölumaður. Hann seldi og keypti um tíma landbúnaðarvörur en seldi svo helst fóðurvörur fyrir Feed Company í Minneapolis í Minnesota.