
Jóhann Þorvaldur Beck Mynd VÍÆ I
Jóhann Þorvaldur Beck fæddist í S. Múlasýslu 9. febrúar, 1900. Joe Beck vestra.
Maki: 2. desember, 1922 Arnbjörg Svanhvít Þorsteinsdóttir f. í Vestmannaeyjum 3. ágúst, 1898.
Börn: 1. Hans Reymond f. 21. september, 1925 2. Richard Leonard f. 14. apríl, 1927 3. Jóhanna Violet f. 29. nóvember, 1928 4. Allan Ágúst f. 21. desember, 1932.
Jóhann flutti vestur til Winnipeg árið 1919, vann við prentun Lögbergs og varð forstjóri útgáfufyrirtækisins Columbia Press í borginni. Arnbjörg flutti vestur með foreldrum sínum, Þorsteini Guðnasyni og Maríu Magnúsdóttur sem vestur fluttu úr Garðfjósum í Vestmannaeyjum árið 1903. Jóhann tók mikinn þátt í félagsmálum landa sinna í borginni, starfaði í Góðtemplarareglunni, söng með karlakór Íslendinga og kór Fyrstu lútersku kirkju, var í Þjóðræknisfélagi Íslendinga og meðlimur Icelandic Canadian Club. Hann var albróðir Dr. Richard Beck, prófessors.