Jóhann Tómasson

ID: 8193
Fæðingarár : 1869
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1949

Jóhann Tómasson fæddist 25. október, 1869 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Garðarbyggð 11. febrúar, 1949.

Maki: 1893 Pálína Þorleifsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu 24. september, 1869, d. í N. Dakota 18. janúar, 1939.

Börn: 1. Tómas (Thomas) f. 3. apríl, 1894 2. Þorleifur f. 16. september, 1895 3. Árni f. 14. mars, 1897, d. 18. maí, 1934 4. Þórdís f. 16. desember, 1900 5. Gamaliel d. í fæðingu 1903 6. Guðrún f. 2. júlí, 1905 7. Gamalíel f. 8. júlí, 1908 8. Lárus f. 26. júní, 1909 9. Steindór f. 8. janúar, 1912. Fóstursonur Richard Earnest f. 7. júlí, 1916.

Jóhann flutti vestur til N. Dakota árið 1888 með foreldrum sínum, Tómasi Jóhannssyni og Guðrúnu Árnadóttur. Pálína var fjölskyldunni samferða þangað, trúlega heitbundin Jóhanni. Þau bjuggu þar alla tíð.