ID: 12484
Fæðingarár : 1894
Jóhanna Björnsdóttir fæddist 10. júní, 1894 í N. Múlasýslu. Heidman vestra.
Maki: 31. mars, 1925 Hannes Jónsson fæddist á skipi á Atlantshafi 27. ágúst, 1887. Anderson vestra.
Barnlaus.
Jóhanna var dóttir Björns Sigurðssonar og Guðrúnar Valgerðar Hallgrímsdóttur úr N. Múlasýslu, og fór með þeim vestur árið 1903. Foreldrar Hannesar voru Jón Júlíus Árnason og seinni kona hans Guðrún Halldóra Sigurðardóttir. Hann var í kanadíska hernum 1918-1919, gerðist bóndi í Hólabyggð í Manitoba í 17 ár. Hann flutti seinna til Glenboro og vann við húsbyggingar.
