Jóhanna Jónsdóttir

ID: 8134
Fæðingarár : 1842
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1927

Jóhanna Sigurlaug Jónsdóttir fæddist á Rútsstöðum í Eyjafjarðarsýslu 18. janúar, 1842. Dáin í Glenboro í Manitoba 22. apríl, 1927.

Maki: 1867 Halldór Árnason fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1845, d. 19. júlí, 1934 í Manitoba.

Börn: 1. Nanna f. 17. janúar, 1869 2. Margrét f. 3. september, 1872

Fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 og þaðan áfram til N. Dakota. Árið 1890 flutti hann í Argylebyggð á land sem hann keypti. Seinna seldi hann land og hús og flutti til Glenboro og bjó þar til dauðadags.