Jóhanna Jónsdóttir

ID: 10152
Fæðingarár : 1879

Jóhanna Jónsdóttir fæddist í Kelduhverfi í N. Þingeyjarsýslu 3. nóvember, 1879. Pearson í hjónabandi vestra.

Maki: 24. janúar, 1914 Niels Pearson d. 16. febrúar, 1930.

Börn; 1. Peter f. 4. desember, 1914, d. 16. maí, 1957 2. Anna María f. 10. júlí, 1917.

Jóhanna flutti vestur til Winnipeg frá Austurgarði í Kelduneshreppi árið 1905. Hún hafði verið vinnukona á ýmsum bæjum á Íslandi fyrir vesturför og þegar hún kom til Winnipeg hélt hún því áfram á ýmsum bæjum í borginni. Seinna flutti hún vestur til Vancouver. Þar var hún húsmóðir á eigin heimili en gaf sér tíma til að taka þátt í þjóðræknismálum. Hún var ritari Sólskins, íslenska kvenfélagsins þar í borg í 40 ár.