Jóhanna M Sigurðardóttir

ID: 20505
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1902
Dánarár : 1961

Jóhanna M Sigurðardóttir Mynd VÍÆ II

Jóhanna Magnúsína Sigurðardóttir fæddist í Gimli 18. október, 1902. Dáin þar 23. desember, 1961.

Maki: 29. október, 1925 Edvin Ágúst Einarsson f. í Gimli 10. okt., 1902.

Barnlaus.

Jóhanna var dóttir Sigurðar Þorvaldar Kristjánssonar úr Skagafirði og Sigurbjargar Þórðardóttur í Vopnafirði.  Edvin var sonur Einars Jónassonar og Jónínu I Sigfúsdóttur á Gimli. Hann lauk námi þar og lærði síðan bókhald. Vann við það á Gimli alla tíð.  Jóhanna var hagmælt og birtust sum ljóða hennar í vesturíslenskum blöðum og tímaritum.