Jóhanna Ólafsdóttir

ID: 7649
Fæðingarár : 1832
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla

Jóhanna Ólafsdóttir fæddist árið 1832 í Skagafjarðarsýslu.

Maki: Pétur Guðlaugsson f. árið 1820 í Skagafjarðarsýslu.

Börn: 1. Elín Petrína f. 1851 2. Guðlaug Sesselja f. 1861 3. Stefán f. 1863 4. Helga f. 1865 5. Anna Kristín f. 1866 6. Sveinn f. 1869. Heimild vestra segir börn Péturs og Jóhönnu hafi verið 19.

Elín Petrína fór vestur til Nýja Íslands með manni sínum, Alberti Þiðrikssyni og settust að í Húsavík í Nýja Íslandi. Stefán fór vestur til Winnipeg árið 1887 og Pétur og Jóhanna ári síðar. Með þeim fóru Helga, Anna Kristín og Sveinn. Þau settust að í Manitoba.