Jóhanna Þorsteinsdóttir

ID: 9819
Fæðingarár : 1871
Dánarár : 1918

Jóhanna Þorsteinsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 12. október, 1871. Dáin í Blaine í Washington vorið 1918.

Maki: 1901 í Baldur Magnús Þórðarson f. í Ísafjarðarsýslu 10. janúar, 1869, d. í Stafholti í Blaine 13. ágúst, 1961.

Börn: 1. Sigurveig f. 4. nóvember, 1902, d. 1926 2. Þórður f. 3. apríl, 1904 3. Ella f. 22. júní, 1905 4. Matthildur f. 10. mars, 1907 5. Kristín f. 15. apríl, 1910 6. Sigrún f. 18. september, 1911 7. Margrét f. 26. desember, 1912.

Jóhanna var dóttir Þorsteins Snorrasonar og Sigurveigar Jóhannesdóttur. Hún flutti til Manitoba með móður sinni árið 1896. Magnús var sonur Þórðar Magnússonar og Guðríðar Hafliðadóttur frá Hattardal í Ísafjarðarsýslu. Jóhanna og Magnús fluttu vestur að Kyrrahafi árið 1902 og settust að í Blaine.