ID: 9064
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Jóhannes Arngrímsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1852. Anderson vestra.
Ókvæntur og barnlaus.
Hann fór vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1872. Jóhannes var strax áhugasamur um hag Íslendinga vestra, bæði þeirra sem vestur voru komnir og reiknað var með þangað. Gerðist umboðsmaður fyrir fylkisstjórn Nova Scotia og ferðaðist til Íslands árið 1875. Hann var helsti talsmaður nýrrar, íslenskrar byggðar í Nova Scotia. Sjá Markland.
