Jóhannes Joensen

ID: 18976
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : Færeyjar

Jóhannes Joensen fæddist í Færeyjum 12. mars, 1863.

Maki: Kristín Sölvadóttir f. í Skagafjarðarsýslu árið 1866, d. 6. september, 1905. Mun hafa verið dóttir Sölva Helgasonar.

Börn: 1. Edward (Edwin) John f. 1902 2. Guðbjörg Þóra Sigurlína f. 8. janúar, 1903 3. Súsanna f. 1904, d. 1918 4. Lilja f. 1906.

Jóhannes fór vestur til Winnipeg í Manitoba frá Færeyjum um 1890. Hann flutti í Big Point byggð og nam þar land 1897. Kristín fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1899. Jón sonur hennar mun hafa farið vestur þangað sama ár. Þegat Kristín lést voru börn hennar og Jóhannesar tekin í fóstur. Davíð Valdimarsson og Guðbjörg Jónsdóttir kona hans tóku Guðbjörgu að sér, Ólafur Hannesson og Sigríður kona hans tóku Edwin að sér og Jósef Helgason og Guðrún Árnadóttir Lilju og Súsönnu.