Jóhannes Jónsson

ID: 14329
Fæðingarár : 1865
Dánarár : 1939

Jóhannes Jónsson og Ólöf Sigurveig Jónsdóttir Mynd VÍÆ V

Jóhannes Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 8. desember, 1865. Dáinn í Siglunesbyggð í Manitoba 30. september, 1939.

Maki: Ólöf Sigurveig Jónsdóttir f. 23. mars, 1871, d. 3. nóvember, 1949.

Börn: 1. Jón Helgi f. 28. apríl, 1890 2. Ingunn f. 28. ágúst, 1892 3. Ástfríður (Ásta) f. 16. júní, 1895, d. 3. mars,1974 4. Helga f. 11. janúar, 1899 5. Ólafur f. 27. nóvember, 1901 6. Ragna Soffía f. 16. mars, 1907 7. Óskar f. 20. október, 1910.

Jóhannes og Ólöf fluttu vestur árið 1901 og settust að í Álftavatnsbyggð. Fimm árum seinna, 1906, færðu þau sig til og völdu land nærri Vogar P.O. Þar vann Jóhannes vel og endaði með stórbúi sem synir hans stækkuðu enn frekar. Hann tók þátt í samfélagsmálum landa sinna þar um slóðir og sat um skeið í skólanefnd Siglunessskóla héraðs.