Jóhannes Markússon

ID: 19110
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1921

Jóhannes Markússon fæddist í Dalasýslu 22. nóvember, 1856. Dáinn 17. janúar, 1921 í Saskatchewan.

Maki: 1892 Margrét Sigurðardóttir f. 11. september, 1867 í Dalasýslu, d. 17. júlí, 1946.

Börn: 1. Elín Kristín f. 19. júní, 1903

Þau fóru vestur árið 1891 til Winnipeg í Manitoba.  Þar bjuggu þau í 15 ár, seldu þá hús sitt í borginni og fluttu í Þingvallabyggð í Saskatchewan.