Jóhannes P Eyjólfsson

ID: 18967
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : Snæfellsnessýsla

Jóhannes Páll Eyjólfsson fæddist árið 1863 í Snæfellsnessýslu.

Maki: 1903 Margrét Jónsdóttir f. 1873 í Gullbringusýslu. Hún var alsystir Erlends Jónssonar í Pine Valley byggð.

Börn: 1. Óskar 2. Leifa 3. George 4. Karl.

Jóhannes lærði gullsmíði í Reykjavík, fór til Kaupmannahafnar og þaðan vestur til Norður Dakota árið 1886. Vann bæði þar og í Kanada en flutti í Pine Valley byggð haustið 1897. Flutti til Raymond í Washingtonríki með fjölskylduna árið 1905.