Jóhannes Sigurðsson

ID: 9638
Fæðingarár : 1864
Dánarár : 1920

Jóhannes Sigurðsson Mynd Laxdælir

Jóhannes Sigurðsson fæddist í Laxárdal í S. Þingeyjarsýslu 29. júní, 1864. Dáinn í Seattle í Washington 14. mars, 1920.

Maki: Ragnhildur Magnúsdóttir f. 1870.

Börn: Fóru vestur með óskírt barn.

Jóhannes mun hafa farið vestur einsamall árið 1889, komið aftur til Íslands eftir fáein ár og síðan farið alfarinn vestur árið 1900 með konu sína og barn. Þau munu hafa búið eitthvað vestur við Kyrrahaf.