ID: 17821
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1890
Jóhannes Torfi Þórðarson fæddist í Tantallon, Saskatchewan 5. ágúst, 1890.
Maki: 23. nóvember, 1929 Jóhanna Helga Bjarnadóttir f. í Saskatchewan 19. febrúar, 1899.
Börn: 1. Þórður (Thordur) f. 28. september, 1936.
Jóhannes var sonur Þórðar Kolbeinssonar og Guðríðar Jónsdóttur er vestur fluttu árið 1887 og námu land í Tantallon, Sask. 1889. Ungur hóf Jóhannes búskap nærri Merid í fylkinu, vann síðan í mörg ár í járnvöruverslun Narfa Guðbrandssonar skammt frá Foam Lake. Hann keypti seinna land nærri Foam Lake og ræktaði það. Jóhanna Helga var dóttir Bjarna Jasonarsonar sem vestur flutti 1887 og Guðrúnar Eiríksdóttur, sem flutti vestur úr Árnessýslu 1887.