Jóhannes Vigfússon fæddist í N. Múlasýslu 9. ágúst, 1855. Dáinn í Alberta í Kanada árið 1923. Ýmist Jóhannes eða Jóhann Sveinsson vestra.
Maki: Steinunn Jasonardóttir f. 1867 í Húnavatnssýslu, d. í Alberta árið 1947.
Börn: 1. Anna Sigurbjörg f. 26. desember, 1888 í Mountain, ND 2. Sveinn f. 10. september, 1890 3. Ellis 4. Jason Sigurpáll f. 23. mars, 1894 5. Inga f. 6. desember, 1895 6. Guðrún f. 9. september, 1897 7. Pálína f. 1899 8. Guðbjörg Guðmundína f. í Alberta 15. ágúst, 1901 9. Emilu Margrét f. 18. janúar, 1903 10. Oddur Guðni Leo f. 17. apríl, 1905 11. Sadie Sigríður f. 2. febrúar, 1907 12. Aldís María f. 24. maí, 1909.
Jóhannes var sonur Vigfúsar Guðmundssonar og Sigurbjargar Björnsdóttur. Hann fór vestur með móður sinni og manni hennar, Sveini Þorsteinssyni árið 1876. Þau settust að í Mikley. Þar lést Sveinn en móðir hans bjó eitthvað í Fljótsbyggð áður en hún flutti til Pembina í N. Dakota árið 1880. Jóhannes fylgdi henni þessi ár og flutti með henni til Mountain og þar kynnist hann Steinunni. Þau fluttu vestur til Alberta um aldamótin og námu land nærri Red Deer. Steinunn flutti vestur til Kanada árið 1874 með foreldrum sínum, Jasoni Þórðarsyni og Önnu Jóhannesdóttur
