John V S Samson

ID: 15599
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1909

John V S Samson Mynd VÍÆ I

John Victor Samsonarson fæddist í Winnipeg 26. maí, 1909. Samson vestra.

Maki: Sigríður Oddný Tímóteusdóttir f. 31, janúar, 1910.

Börn: 1. Jón Timothy f. 14. júlí, 1939 2. Margrét Elisabeth f. 5. ágúst, 1944 3. Jeffrey Victor f. 22. september, 1950.

John lærði prentiðn hjá Ólafi S. Thorgeirson, ritstjóra og útgefanda Almanaksins í Winnipeg. Var svo ráðinn til Viking Press Ltd. í Winnipeg um 1930.  Hann keypti prentsmiðjuna með E. T. Guðmundsson og fékk hún þá nafnið Viking Printers. Þeir önnuðust prentun Heimskringlu þangað til blaðið var sameinað Lögbergi. Sigríður var dóttir Tímóteusar Guðmundssonar og Þorbjargar Hallgrímsdóttur landnema nærri Elfros í Vatnabyggð.