Jón Árnason

ID: 19300
Fæðingarár : 1872
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla

Jón Árnason fæddist 2. maí, 1872 í Gullbringusýslu.

Maki: 1901 Sigurveig Sigurðardóttir f. í N. Múlasýslu árið 1874.

Börn: 1. Guðrún 2. Árni

Jón fór vestur til Winnipeg í Manitoba upp úr 1890 og bjó þar í bæ fyrst um sinn. Vann einhvern tíma hjá Guðgeiri Eggertssyni, mági sínum á Stony Mountain norður af Winnipeg. Sigurveig fór vestur árið 1893. Þau fluttu í Þingvallabyggð í Saskatchewan árið 1901 og námu land. Þar bjuggu þau í 12 ár en seldu þá og flutti til Churchbridge þar sem Jón opnaði verslun.