Jón Bergvinsson fæddist í N.Múlasýslu 23. júlí, 1837. Dáinn í Nýja Íslandi 19. janúar, 1881.
Maki: Vilborg Vigfúsdóttir f. 9. desember, 1833 í N.Múlasýslu, d. í Glenboro í Manitoba 9. janúar, 1906.
Börn: 1. Stefán f. 18. september, 1859, d. í Winnipeg 10. apríl, 1918. Jón átti hann fyrir hjónaband. 2. Bergvin f. 1860, d. 29. desember, 1936 í Arizona 3. Sigríður f.1. desember, 1862, d. 30. nóvember, 1918 4. Rósa Ingibjörg f. 18. ágúst, 1867, d. í Blaine, Washington 19. janúar, 1950 5. Gunnlaugur f. 1873, d. 12. júlí, 1941 í Houston, Texas 6. Halldór f. í Fljótsbyggð 9. júní, 1878.
Þau fluttu vestur til Winnipeg, í Manitoba árið 1876 með börnin Bergvin, Sigríði og Gunnlaug. Rósa og Stefán urðu eftir en komu seinna vestur. Þau fóru fyrst norður í Mikley í Nýja Íslandi, þar hét Borðeyri. Þar voru þau fram á sumar, 1878 en þá settust þau að í Fljótsbyggð. Þegar Jón féll frá árið 1881 ákvað Vilborg að flytja til Winnipeg og það gerði hún með börn sín árið 1882. Árið 1889 ákvað Bergvin að flytja til Seattle og fór Vilborg með honum. Sigríður flutti til Glenboro og þangað flutti Vilborg svo seinna.
