Jón E Guðmundsson

ID: 7203
Fæðingarár : 1891

Jón Engilbert Hall Mynd VÍÆ II

Jón Engilberg Guðmundsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 16. júní, 1891.

Maki: 2. júlí, 1931 Ingibjörg Sigríður Hall f. 9. janúar, 1908 í Garðarbyggð í N. Dakota..

Börn: 1. Jo-Ann Margaret f. 22. febrúar, 1935 2. Pauline Olive f. 29. ágúst, 1937 3. John Emmette f. 12. ágúst, 1943.

Foreldrar Jóns, Guðmundur Jónsson og Ásta Margrét Helgadóttir, fluttu vestur árið 1902 og námu land í Garðarbyggð í N. Dakota. Þar ólst Jón upp og varð bóndi í byggðinni. Ingibjörg var dóttir Jóhanns Gunnars Jónssonar Hall og Hosiönnu Guðbjargar Jósefsdóttur er bjuggu í Edinburg í N. Dakota.