
Jón Edwin Marteinson Mynd VÍÆ V

Laufey Lára Fjeldsted Mynd VÍÆ V
Jón Edwin Marteinson fæddist í Riverton í Manitoba 16. janúar, 1900. John Edwin Marteinson meðal enskumælenda.
Maki: 1. september, 1924 Laufey Lára Kristjánsdóttir f. í Manitoba 2. júlí, 1905. Hún skrifaði sig oft Fjeldsted líkt og faðir hennar, Kristján Eggertsson.
Börn: 1. Jón Kristján f. 14. febrúar, 1939 2. Laurel Rose Björg f. 8. september, 1945.
Jón var sonur Guðmundar Marteinssonar og Kristínar Gunnlaugsdóttur, sem vestur fluttu árið 1878 og gerðust bændur í Nýja Íslandi. Jón var lærður rakari og vann við það ungur maður í Winnipeg. Seinna gerðist hann vélstjóri og vann við það þar til hann innritaðist í kanadíska herinn árið 1941. Starfaði í búðum hersins í Shilo í Manitoba ein 10 ár.
