ID: 10794
Fæðingarár : 1903
Jón Friðriksson fæddist í N. Þingeyjarsýslu 12. júní, 1903. Tók föðurnafn föður síns vestra.
Maki: Eleanor Anna Maruda f. í Manitoba 11. desember, 1911, af úkraínskum ættum
Börn: 1. John, f. í Vancouver 25. maí, 1947.
Jón fór vestur 1905 með foreldrum sínum, Friðriki Guðmundssyni og Þorgerði Jónsdóttur og systkinum. Þau fóru til Manitoba og settust að í Winnipeg. Þar bjó Jón, flutti seinna vestur til Vancouver þar sem hann stundaði fiskveiðar. Kom seinna til baka og bjó á Gimli.
