ID: 7697
Fæðingarár : 1849
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Jón Gíslason fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1849.
Maki: Sigurbjörg Guðmundsdóttir f. 1851 í Skagafjarðarsýslu.
Barnlaus en Jón átti fyrir tvo sonu 1. Stefán f. 1879 2. Sigurður.
Þau fluttu vestur frá Garðakoti í Skagafirði árið 1886 með Stefán og settust að í N. Dakota. Tveimur árum seinna fluttu þau vestur til Calgary í Alberta og bjuggu þar um tíma. Námu land rúmum 3 km fyrir norðan Tindastól þar sem þau bjuggu til ársins 1902. Seldi þá Jón hús sín og land, flutti til Red Deer bæjar, settist þar að.
