Jón Hallgrímsson

ID: 8614
Fæðingarár : 1848
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1917

Fyrir aftan Óskar, Þórunn, Valgeir. Sigfús og Kristbjörg. Sitja f.h. Aldís, Sigríður og Elísabet. Mynd RbQ

Jón Hallgrímsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 1. maí, 1848. Dáinn í Saskatchewan 14. september, 1917.

Maki: 1882 Sigríður Sigfúsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1864, d. 1939.

Börn: 1. Valgeir Bergmann f. 19. mars, 1883 2. Sigfús Þórarinn f. 2. mars, 1885 3. Valgerður Elízabet f. 16. september, 1887 4. Þórunn Ólöf f. 13. september, 1888 5. Aldís Soffía f. 26. janúar, 1892 6. Óskar f. 4. júlí, 1899 7. Kristbjörg f. 23. apríl, 1902.

Jón flutti vestur um haf árið 1873 og var á ýmsum stöðum í Bandaríkjunum og Kanada fyrstu tvö árin. Flutti til Nýja Íslands og bjó þar til ársins 1878 en flutti þá til N. Dakota og nam land nærri Hallson. Var þar rúmt ár og flutti svo í Garðarbyggð og nam land nálægt þar sem þorpið Garðar reis seinna.  Árið 1902 fluttu þau vestur til Warrenton í Oregon og bjuggu þar áður en þau fóru í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905. Þar námu þau land í Wynyardbyggð norður af Wynyard.