Jón Hannesson

ID: 12113
Fæðingarár : 1875
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1952

Jón Hannesson fæddist 1. mars, 1875 í N. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Svold í N. Dakota 31. maí, 1952.

Maki: Björg Guðmundsdóttir f. 1876 í S. Múlasýslu.

Börn: Upplýsingar vantar.

Jón flutti vestur til Kanada árið 1887 með foreldrum sínum, Hannesi Jónssyni og Ragnheiði Jónsdóttur. Þau settust að í Pembina sýslu í N. Dakota. Björg flutti vestur til N. Dakota árið 1887 með sínum foreldrum, Guðmundi Finnbogasyni og Guðlaugu Eiríksdóttur sem settust að í Akrabyggð. Jón og Björg námu land í Svold í N. Dakota árið 1916 og bjuggu þar alla tíð.