Jón Jónsson

ID: 11879
Fæðingarár : 1823
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1886

Jón Jónsson fæddist 5. mars, 1823 í N. Múlasýslu. Dáinn í Minnesota árið 1886.

Ekkill.

Börn: 1. Árni Sigvaldi f. 3. september, 1862. Með Elísabetu Sigurðardóttur 1. Oddný Anna f. 1879.

Jón flutti vestur til Minnesota árið 1880 ásamt syni sínum Árna, Elísabetu Sigurðardóttur og Oddnýju, ársgamallri dóttur þeirra. Þau settust að í Lincoln sýslu þar sem Elísabet lést úr berklum árið 1881.