Jón Jónsson

ID: 12384
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1923

Jón Jónsson frá Sleðbrjót Mynd WtW

Jón Jónsson fæddist 2. nóvember, 1852 í N. Múlasýslu. Dáinn 26. nóvember, 1923. Gjarnan kenndur við Sleðbrjót.

Maki: 14. júlí, 1876 Guðrún Jónsdóttir f. 20. október, 1855 í N. Múlasýslu.

Börn: 1. Björg f. 1877 2. Páll f. 1885 3. Ragnhildur f. 26. apríl, 1887, d. 18. apríl, 1958 4. Guðmundur f. 1891 5. Helga f. 1892 6. Jón f. 1894 7. Ingibjörg f. 25. ágúst, 1896.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1903 og fóru áfram í Lundarbyggð. Þau keyptu land á Rabbit Point árið 1905 og bjuggu þar næstu þrjú árin. Fluttu þaðan í Siglunesbyggð árið 1908.