Jón Jónsson

ID: 1153
Fæðingarár : 1870
Dánarár : 1955

Jón Jónsson Bíldfell Mynd VÍÆ I

Jón Jónsson fæddist 1. maí, 1870 að Bíldsfelli í Árnessýslu. Dáinn 17. ágúst, 1955. Bíldfell vestra.

Maki: 7. apríl, 1903 Aðalbjörg Soffía Þorsteinsdóttir f. 3. júní, 1876 í N. Múlasýslu.

Börn: 1. Hrefna Þjóðbjörg f. 17. desember, 1903 2. Jón Aðalsteinn f. 16. október, 1905 3. Sylvia Jakobína f. 4. ágúst,1907.

Jón flutti vestur til Manitoba árið 1888. Hann vann við skógarhögg og járnbrautalagningu í þrjú ár áður en hann fór í skóla. Hann lauk prófi í verslunarskóla í Winnipeg og fór í gullleit til Klondyke. Sneri aftur til Winnipeg og hóf fasteignasölu. Hann var alla tíð afar virkur í íslenska samfélaginu, ekki aðeins í Winnipeg heldur fylkinu öllu. Sjá meira í Íslensk arfleifð að neðan.

Íslensk arfleifð :