Jón Jónsson

ID: 7234
Fæðingarár : 1860
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1949

Jón Jónsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 1. maí, 1860. Dáinn í Edmonton í Alberta 6. febrúar, 1949. Johnson vestra.

Maki: 1881 Sigurbjörg Benediktsdóttir f. 1860 í Skagafjarðarsýslu, d. 1933 í Edmonton.

Börn: 1. Ólafur Tryggvi f. 12. maí, 1882, d. 7. júní, 1932 2. Hólmfríður 3. Pétur 4. Karl Jón 5. Ingiríður 6. Benedikt Albert f. í Markerville 11. október, 1890, d. 1. maí, 1910 7. Snorri Edmund.

Jón flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum, Jóni Péturssyni og Ingunni Ólafsdóttur árið 1876. Þau settust að í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi þar sem þau bjuggu til ársins 1880, voru í Winnipeg til vors 1881 en fluttu þá í Hallsonbyggð í N. Dakota. Þar kvæntist Jón og hóf búskap beð Sigurbjörgu. Þau fluttu vestur til Calgary árið 1888 en námu land í Markerville þar sem þau bjuggu til ársins 1903. Þá fluttu þau til Edmonton sem var í mikilli uppbyggingu og Jón fór að stunda fasteignaviðskipti. Hann efnaðist vel á næstu árum.