ID: 11488
Fæðingarár : 1870
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1910
Jón Jósefsson fæddist í N. Múlasýslu 13. ágúst, 1870. Dáinn í Lyon sýslu fyrir 1910. John W Hoff vestra.
Maki: 1) Alice Swanson f. 1877 á Íslandi, d. 20. apríl, 1894 í Marshall í Minnesota 2) Júlía Peterson af norskum ættum d. 15. desember, 1953.
Börn: Með Júlíu 1. Ella f. 1896 2. Ida Emily f. 1898, d. í júní, 1899 3. Joseph Orlando f. 1901 4. Stella f. 20. nóvember, 1902.
Jón flutti vestur árið 1878 með foreldrum sínum, Jósef Jónssyni og Arndísi Jónsdóttur. Þau voru fyrst í Minneota an fluttu þaðan í bæinn Marshall og var Jón með þeim. Hann bjó síðan í Nordland hreppi í Lyon sýslu.
